Description
SYR SafeTech leka-viðvörunarkerfi
- Tenging beint í APP til að fylgjast með og einnig fá boð um leka
- Mælir einnig vatnsnotkun og hitastig
- Getur fundið út litla sem stóra leka
- Einfalt í notkun og kemur í veg fyrir stór tjón
Syr lekavörn fylgist með vatninu allan sólarhringin og mælir bæði flæði, þrýsting og vatnsgæði. Tækið byrjar á því að læra á þína notkun og með því má bregðast hraðar við ef notkun verður óeðlilega mikil. Möguleiki er að tengja kerfið við hússtjórnarkerfi ásamt því að stjórna í gegnum APP í snjallsíma eða tölvu.
Einnig er hægt að fá vatnsnema sem vinnur með búnaðnum til að staðsetja við tæki eins og þvottavélar, uppþvottavélar eða annan búnað þar sem hætta er á leka.